Færsluflokkur: Bloggar

Partý og fleira

Síðustu helgi fórum við hjónin á árshátíð Reykjanesbæjar og var það virkilega gaman.  Bæjarskrifstofurnar sáu um árshátíðina og voru einnig með skemmtiatriði og var þetta hin mesta skemmtun.

Ösp átti svo afmæli á mánudaginn og þegar fólk er komið yfir 30 ára þá er ekkert gefið upp hvursu stórt afmælið var en hún eldist mjög vel.  Mun betur en eiginmaðurinn.

Á morgun erum við svo að fara á árshátið Flugmálastjórnar og stefnir allt í að hún verði verulega glæsileg.

Elmar er að leika í atriði á árshátíð Holtaskóla á morgun en undanfarna daga er hann búinn að vera að æfa ásamt bekknum sínum og erum við mjög spennt að sjá þetta á morgun.  Ég ætla að taka Glóey með svo að sem flestir úr fjölskyldunni taki þátt.  Reyndar erum við viss um að Nói yrði einungis til vandræða ef hann kæmi með svo hann verður bara hjá Ömmu sinni.

Síðasta sunnudag fórum við hjónin á nýju revíuna hjá Leikfélagi Keflavíkur, Besti Bær og var hún virkilega skemmtileg.  Við félagarnir í Breiðbandinu fórum og var gert grín að okkur og einnig okkar grín og eitt lag notað í revíunni og erum við RÍFANDI stoltir.  Nú getum við farið að pakka saman og hætta fyrst við erum komnir á þann sess í bænum að okkar sé getið í gamanleikritum.sumo

Ég mæli eindregið með þessu leikriti og þá sérstaklega Breiðbombunum.


Smá fréttir

Ég er ekkert búinn að vera neitt duglegur að skrifa hérna enda líf mitt kannski ekkert voðalega viðburðarríkt.  Annars hér er það sem er að gerast þessa dagana.Skota-Hannah-clan (betri)[1]

Framundan er mikið djamm hjá okkur.  Við hjónin erum að fara á tvær árshátíðiðr næstu tvær helgar.  Fyrst er það árshátíð Reykjanesbæjar í Stapanum, og svo strax næstu helgi á eftir er það árshátíð Flugmálastjórnar þar sem ég er að vinna.  Ég ætla að reyna að afreka það að vera bara á bíl á fyrri árshátíðinni og þar af leiðandi ekki að drekka neitt.  En því miður verð ég að drekka eitthvað á seinni árshátíðinni þar sem vínið er frítt.  Það er dónaskapur að þiggja ekki fríar veitingar. Ég er að gæla við það að mæta í skotapilsinu þar.  Hvað finnst ykkur á ég að þora því.

Annars er það svo ótrúlegt að ég hef ekki fengið mér bjór núna labelsí 8 daga.  Já þið lásuð rétt ÁTTA DAGA!!!  Ástæðan fyrir þessari vitleysu er að ég skellti mér til mágkonu minnar hennar Sóleyjar og er hún að reyna að kenna mér að borða rétt samkvæmt dönsku kerfi.  Ég hét vitaskuld að þar sem þetta væri tengt við Danmörku þá mætti drekka Tuborg og Carlsberg en það er ekki svo gott.  Allt áfengi er bannað.  Ég hef núna prufað þetta í viku og heil þrjú kíló hafa yfirgefið mig og vonandi til frambúðar.  En ef ég þekki mig rétt þá ég eftir að bjóða þau velkomin seinna meir og þá jafnvel með liðsauka með sér.  En það er nú einusinni þannig að líkaminn er musteri manns og þá hljóta hvert kíló að vera eins og safnaðarmeðlimur.  Og hver vill ekki að söfnuðurinn sinn sé stór.dummies

Einnig er það að frétta að ég hef aftur hafið nám á bassa.  Ég hef tekið bassann með á 3 Breiðbandsæfingar, hljómsveitarfélögum mínum til mikills hryllings.  En einu sinni í viku er ég í bassatímum hjá snillingnum honum Sóla.  Sóli starfaði í 3 ár í hinni rómuðu hljómsveit Geirmundar Valtýssonar sem öllum er kunnug.  Svo er þetta bókin sem ég er að lesa.  Þyrfti örugglega frekar Bass Guitar for Retards.

Nóg í bili ég ætla að reyna að skreyta þetta eitthvað með myndum.

Rúnar I. Hannah

PS. við erum að fara að taka baðið í gegn hjá okkur svo ef það er einhver pípari sem hefur lítið að gera að lesa þetta hafðu þá endilega samband.


Fjör í Danmörku

arnibjornJæja það er búið að vera nóg að gera undanfarið.  Myndir koma seinna.  Ég undirritaður skrapp til Danmerkur og skemmti þar á Þorrablóti með Breiðbandinu.  Þorrablótið tókst frábærlega og hér má sjá myndir og umfjöllun á spjallinu www.ifhorsens.dk.

Við fengum frábæra Penthouse íbúð og vorum með einkabílstjóra allan tímann.  Hann sést hérna á myndinni Árni Björn Erlingsson og vill ég þakka honum kærlega fyrir allt stjanið í kringum hljómsveitina.  Fyrir allt nema að mæla með pizzastað sem seldi ekki bjór.

Ég mun reyna að setja inn fleiri myndir frá danmörku á næstunni. 

Annars byrjaði ég enn og aftur að reyna að glamra á hljóðfæri og nú með nýjum kennara sem hefur spilað í 3 ár með Geirmundi Valtýssyni.  Við erum tveir sem erum í tímum og fáum okkur bjór með svo það er möguleiki að maður endist í þetta sinn fyrst bjór er annars vegar.

Meira síðar


Myndir úr símanum

nullÍ dag fórum við í fjöruferð útá Garðskaga og svo gáfum við fuglunum við Fitjar.  Við prufuðum að taka myndir með símunum sem við erum með.  Hér til hliðar má sjá nokkrar myndir undir möppunni Sony Ericsson.  Vonandi næ ég að bæta við fleiri myndum fljótlega.

Myndirnar hans Elmars.

nullEins og flestir sem þekkja okkur vita þá hefur Elmar mikinn áhuga á dýrum og vitaskuld verður hann með sitt pláss hér á heimasíðunni.  Elmar hefur verið að finna furðulegar myndir á netinu þar sem dýr koma við sögu á þeim flestum.  Mikið af þessum myndum eru myndbreyttar með myndaforritum. (vill ekki segja Photoshopaðar). 

Einhverjir hafa verið í vandræðum með að skrifa í athugasemdir hér fyrir neðan.  En við viljum endilega að sem flestir skrifi.  En ef maður skrifar þá þarf að staðfesta það svo með netfanginu sínu tvisvar.  Kerfið bíður ekki upp á neitt annað.  Ég held að þetta sé svo að hvaða vitleysingur sem er sé ekki að skrifa.

Kveðja

Rúnar I. Hannah og fjölskylda.


Nokkrar myndir

GlóeyVar að prufa að setja inn nýjar myndir.  Vonandi hafið þið gaman af.  Þær ættu að sjást hér til hliðar.

Annars er það að frétta að Elmar var að fá 10 í einkunn í skyndiprófi áðan.  Nói og Glóey eru í baði með tilheyrandi látum.  Ég á leiðinni á fótboltaleik.  Æfingaleik á milli Keflavíkur og Grindavíkur.  Í fyrsta sinn sem ég sé mína menn frá því þeir urðu bikarmeistarar.

 

Kveðja

Rúnar


Gamlar myndir

Þó þessi síða sé ný þá hef ég áður gert síður með myndum.  Td. var ég voða duglegur að taka myndir í Danmörku og hér má sjá samansafn af árunum okkar þar.   http://hjem.get2net.dk/rihannah/ 

Sýnishornið er af Elmari og Glóey fyrir nokkrulukkulakim árum. 

Einnig er hægt að finna mynd af Talibana þarna, látið vita ef þið finnið hann.

 

 

 

Einnig dundaði ég mér einusinni að setja upp síðu eftir að Nói fæddist.  Ég setti að vísu bara einusinni inn myndir þar, en hér er sú síða.  http://frontpage.simnet.is/rihannah/bn.htm2005%2008%20069

 

Góða skemmtun.

Rúnar I. Hannah


Allt í fína frá Kína.

sh_teadayJæja hér er svo fyrsta alvöru færslan.  Ég er hér á næturvakt og það er frekar lítið að gera.  Ég er að læra Kínversku á næturvaktinni því ég er að vinna með Tóra og Mei Mei.  Og það er Mei Mei sem kennir mér kínversku.  Tóri kennir meira almenna ósiði eins og aftansöng á almannafæri.

Það sem ég kann núna er:

  • Níhá=góðan daginn
  • sjösjöní=Takk fyrir
  • sægtsén=bless
  • Bú=nei
  • Shhh=Já, þýðir líka Er
  • Wo=Ég
  • djá=heiti
  • Wo djá Rúnar= Ég heiti Rúnar.
  • Bin dá =ísland
  • Bin dá ren=íslendingur
  • Wo shh Bin dá ren= Ég er íslendingur.

Ég ætla að setja þetta framvegis til hliðar í Kínverskt orðasafn.

Sægtsén

Rúnar

PS. Ef þið viljið skrifa í athugasemdir sem er mjög gaman þá þarf að skrifa nafn og netfangið líka, tvisvar.


Fyrsta bloggfærsla

Jæja hér er fyrsta færsla í nýju blogg síðuna okkar.  Hér koma fréttir af fjölskyldunni okkar.

Framundan eru spennandi tímar.  Við ætlum öll til útlanda í sumar og fjölskyldufaðirinn skreppur til danmörku í næstu viku að skemmta.

En þetta er fyrsta tilraun svo sjáum hvernig þetta fer.

Kveðja

Rúnar I. Hannah


Höfundur

Fjölskyldan
Fjölskyldan
Fréttir af fjölskyldunni á Smáratúni 41. Rúnari, Ösp, Elmari, Glóey og Nóa.
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband